Hlaupaheilsa er vefur fyrir hlaupara á öllum stigum. Hér er hægt að finna gagnlegar upplýsingar varðandi flest allt sem að við kemur hlaupum.
Urður Örlygsdóttir er stofnandi og vefstjóri Hlaupaheilsu. Urður er 27 ára flugfreyja og háskólanemi.
Ég hef mikinn áhuga á hollu mataræði og hreyfingu. Hef verið grænmetisæta í 9 ár og hlaup hafa átt hug minn allan síðastliðin fimm ár. Mér fannst vanta góðan alhliða hlaupavef hér á landi til að svara þeim spurningum sem upp koma hjá manni bæði þegar að maður er að hefja hlaupaferilinn en einnig þegar maður er lengra kominn. Hvatinn til að stofna síðun var sá að ég vildi bæta mig í hlaupi og finna hvað hentaði mér best, bæði hvað varðaði hlaupastíl og æfingar en einnig mataræði. Hér á landi eru til hlaupavefir og hlaðvörp en enginn vefur sem að inniheldur allar þær upplýsingar sem að ég sóttist eftir á sama stað. Þá var fátt annað í stöðunni en að taka málin í eigin hendur og búa til hlaupavefinn.
Það er margt sem að ber að hafa í huga varðandi hlaup á Íslandi en tilgangur vefsins er að svara flestum spurningum sem að fólk leitar svörum við varðandi hlaup.
Á vefnum er t.d. að finna upplýsingar varðandi
- Hlaup á næstunni og úrslit úr eldri hlaupum
- Hlaupahópa víðsvegar um landið
- Hlaupaþjálfun
- Hlaupabúnað
- Næringu hlauparans
- Maraþon um allan heim
- Greinar og fréttir um hlaupatengt efni
Vonandi nýtist vefurinn hlaupurum landsins vel. Við tökum ábendingum fagnandi og viljum alltaf bæta vefinn eins mikið og hægt er.

Mundu að hlaup snýst um:
Endurtekningu
Líkami þinn bætir sig í því, sem hann æfir. Ef þig langar til að verða betri hlaupari, eru kostirnir einfaldir. Þú verður að hlaupa.
Hægar framfarir
Með því að gera of mikið of fljótt ertu á öruggri leið að fá æfingaleiða eða lenda í æfingameiðslum. Reyndu að hugsa eins og skjaldbakan, ekki eins og hérinn í dæmisögunni. Taktu því rólega.
Fjölbreytni
Æfðu á margvíslegan hátt. Gættu þess að hafa æfingaálag misjafnt. Hlauptu á margvíslegan máta um eitthvert skeið, til dæmis í mánuð.