Veturinn genginn í garð

Eftir frábært hlaupasumar og milt haust er veturinn genginn í garð. Við brýnum fyrir öllum hlaupurum að fara vel undirbúin inn í veturinn til að forðast meiðsli og slys. Það besta við hlaupið er að það er alltaf að hægt að stunda það, sama hvernig viðrar. Það mikilvæga er að vera vel búinn.

Atriði til að hafa í huga:

Vertu áberandi: Ef að farið er út að hlaupa á kvöldin eða í skammdeginu er mikilvægt að vera sjáanlegur. Keyptu skæran fatnað sem að er með endurskinsmerkjum eða smelltu þeim á þig. Það fást einnig lítil hlaupaljós í matvöruverslunum og útivistarverslunum sem auðvelt er að festa á sig og kveikja á þegar við á.

Mannbroddar: Það er ekkert mál að hlaupa í hálku ef að við erum vel búin og með góða mannbrodda. Hægt er að kaupa sérstaka hálkubrodda fyrir hlaupara.

Hlýr fatnaður: Það er misskilningur að það sé best að vera í mörgum lögum af fötum þegar hlaupið er í miklum kulda. Rétt að notfæra sér mjúkan sérunninn fatnað næst sér sem þornar fljótt og heldur ekki rakanum í sér. Þar fyrir utan er best að vera í léttum jakka og buxum sem hlífa fyrir vindi, eru nokkuð vatnsheld, og hleypa lofti í gegnum sig. Með þannig fatnað er allt annað líf að stunda útihlaup að vetri til. Fatnaðurinn er það léttur að hann hindrar ekki hreyfingar en er samt mjög einangrandi. Þessi sérhannaði fatnaður er nokkuð dýr en endist líka vel.

Upphitun: Upphitun er að sjálfsögðu alltaf mikilvæg. En kuldinn gerir það að verkum að vöðvar og liðamót eru ekki eins sveigjanleg og á sumrin og þá er frekari hætta á meiðslum. Við mælum með að taka sérstaklega góða upphitun fyrir hlaup í kulda.

Design a site like this with WordPress.com
Get started