Fréttir

Powerade Vetrarhlaupið

Mynd frá hlaupinu 14 nóv. Mynd: Ph/facebooksíða poweradehlaupsins

Powerade vetrarhlaupin eru hlaup sem að margir bíða eftir ár hvert. Hlaupin eru 10km og eru sex talsins. Það fyrsta í október og það síðasta í mars. Veturinn í ár markar tuttugu ára afmæli hlaupsins.

Dagsetningarnar í vetur eru:

10. október/lokið

14. nóvember/lokið

12. desember

9. janúar 2020

13. febrúar 2020

12. mars 2020

Hlaupin hefjast stundvíslega kl. 20 við Árbæjarlaug. Hægt er að kaupa þátttökuseðla í anddyri laugarinnar og kostar 500 kr. Powerade hlaupið er hlaup fyrir alla og afar skemmtilegur partur af hlaupavetrinum. Hægt er að mæta í einstaka hlaup eða taka þátt í allri hlaupaseríunni. Stigakeppni er fyrir þá sem að hyggjast taka þátt í öllum hlaupunum og virkar það svona:

Stigakeppni
Stigakeppni virkar þannig:

1. sæti gefur 10 stig
2. sæti gefur 9 stig
3. sæti gefur 8 stig
4. sæti gefur 7 stig
5. sæti gefur 6 stig
6. sæti gefur 5 stig
7. sæti gefur 4 stig
8. sæti gefur 3 stig
9. sæti gefur 2 stig
10. sæti gefur 1 stig

og samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum sex gildir.

Hvetjum alla til að mæta í næsta hlaup þann 12. des nk. kl 20 og minnum fólk á að mæta í skærum fatnaði eða með endurskinsmerki enda orðið dimmt úti.

Góða skemmtun!

Design a site like this with WordPress.com
Get started