Hlaup 101

Hlaup eru frábær æfing fyrir líkama og sál, þau auka vellíðan á svo mörgum sviðum og erfitt er að hætta að hlaupa þegar dellan hefur náð yfir.

Ef að þú ert að taka þín fyrstu skref sem hlaupari þá bjóðum við þig hjartanlega velkomin.

Beint út að hlaupa eins hratt og ég get?

Það er algengur misskilningur að góðir hlauparar hlaupi hratt. Það sem einkennir góðan hlaupara er góður hlaupastíll, jafn hraði og gott úthald. Það er lykilatriði að kunna að hlaupa hægt, því ef að við getum hlaupið hægt þá getum við á endanum hlaupið hratt. Þetta felst allt í þjálfuninni.

Fyrstu skrefin

Lykilatriði er að eiga góða skó. Ekki fara inn á netið og lesa þig til um hvaða skór eru bestir og fá hæstu einkunn. Þegar að það kemur að hlaupaskóm er það algjörlega persónubundið. Farðu og mátaðu skó og sjáðu hvað hentar þér og þínum fótum. Margar búðir bjóða upp á göngugreiningu til að hjálpa þér að finna þá skó sem að henta þér.

Neðribúkur á konu að hlaupa

Þekktustu merkin eru:

  • Asics
  • Brooks
  • Nike
  • Adidas
  • Saucony

Hitaðu upp

Hitaðu alltaf upp áður en þú ferð að hlaupa. Gott er að taka hreyfiteygjur og teygja vel á öllum líkamanum. Einnig er gott að byrja allar hlaupaæfingar á því að taka létt skokk og stutt 10sek spretti til að undirbúa líkamann. Það er mikilvægt að muna að dagsformið er ólíkt og þó svo að þú hafir átt góðan hlaupadag í dag gæti formið verið ólíkt í dag. En eins og með flest allt í lífinu þá skapar æfingin meistarann.

Design a site like this with WordPress.com
Get started