
Það er mikilvægt að þjálfa líkamann vel og fara hægt af stað þegar það kemur að hlaupi. Mikilvægt er að þjálfa hraða, líkamsbeitingu og öndun. Og mundu að það er aldrei hægt að fara of hægt!
Til þess að komast í hóp afrekshlaupara og ná hámarksárangri eru til ýmsar leiðir að árangri sem eru misgáfulegar. Í grunninn virka allar nálganir hlaupaþjálfunar með einum eða öðrum hætti. Ef við hlaupum þá bætum við okkur sem hlauparar, spurningin er hinsvegar hversu mikið erum við að bæta okkur og hvaða áhrif hefur okkar nálgun á meiðslalíkur og ofþjálfun. – Hlaupahandbókin
Hraði
Stöðugleiki í æfingum og hæg stigmögnun í álagi skipta öllu máli fyrir árangur í hlaupum. Þau sem æfa stöðugast ná mestum árangri og þau sem fara ekki of hratt af stað eiga í minnstri hættu á meiðslum.
Ef þú vilt verða góður hlaupari og sjá framfarir þá verður þú að kunna að hlaupa hægt! Fyrst er mikilvægt að læra að hlaupa hægt og þaðan getum við aukið hraðann.
Líkamsbeiting
Það er ákveðin meiðslaforvörn í því að kunna að beita sér rétt og mikilvægt að hlaupastíllinn vinni með þér en ekki gegn þér. Líkamsbeiting íþróttamanna skiptir miklu máli upp á meiðsl og álag á líkamann.
Öndun
Þegar við hlaupum er mikilvægt að hlúa að önduninni. Best er að nota djúpa þindaröndun/magaöndun sem hámarkar súrefnisupptöku. Loftið sem við öndum að okkur þegar við hlaupum er aðeins í stuttan tíma í lungunum og með þessu komum við í veg fyrir algjör loftskipti. Léleg öndunartækni er oft ástæðan fyrir því að við fáum hlaupasting þegar við hlaupum.
Viltu vera með allt á hreinu?
Það er oft gott að fá aðstoð þegar að maður er að byrja að hlaupa eða þegar að maður lendir á þröskuldi og vill sjá árangur. Arnar Pétursson hlaupari með meiru gaf út hlaupabók í núna í ár og mætti kalla hana biblíu hlauparans. Við mælum eindregið með Hlaupabókinni. Hægt er að versla hana hér: